Hótel Borgarnes
Hótel
Borgarnes er þægilegt þriggja stjörnu heilsárshótel í hjarta
vesturlands, Borgarnesi. Hótelið er á rólegum stað í gamla bænum,
steinsnar frá allri þjónustu. Í göngufæri eru útisundlaug með
rennibrautum og heitum pottum, glæsileg íþrótattaaðstaða,
upplýsingamiðstöð, söfn, verslanir og barir auk fjölda frábærra
gönguleiða þar sem hægt er að njóta útiverunnar í rólegu og fallegu
umhverfi.
Á hótelinu er öll aðstaða eins og best verður á kosið fyrir
ferðamenn, fjölskyldur og fólk í viðskiptaerindum. Starfsfólk
hótleslins kappkostar að veita gestum góða og persónulega þjónustu
og hefur metnað og reynslu til að takast á við hvers kyns
viðfangsefni.
Borgarnes er 2000 manna bær, 70 km. fyrir vestan Reykjavík og í 120
km. fjarlægð frá flugvellinum í Keflavík..
Umhverfi Borgarness
Í nágreni við Borgarnes eru margar af helstu náttúrperlum landsins
og nægir þar að nefna Hraunfossa, Surtshellir og hæsta foss landsins
Glym. Einnig eru Gullfoss, Geysir og Snæfellsjökull í innan við
tveggja tíma akstursfæri frá Borgarnesi.
Umhverfi Borgarness er uppfullt af merkum stöðum íslendingasagnanna
eins og Borg á Mýrum og Reykholt.
Borgarfjörðurinn hefur á að skipa mörgum af bestu lax og
silungsveiðstöðum landsins, einnig er auðvelt að komast á hestbak
eða skella sér í golf en rétt utan Borgarness er mjög góður 9 holu
golfvöllur og annar 18 holu við Akranes.
Frekari upplýsingar um borgarfjörðin er að finna á
www.borgarfjordur.com
VOR VERÐ
01.04 - 31.05. 2009
|
Eins
manns herbergi/Single room |
10.900. kr
|
|
Tveggja
manna herbergi/Double room |
12.900.
kr
|
|
Þriggja
manna herbergi/Triple room |
15.500.kr
|
|
Aukarúm/Extra bed |
4.000. kr |
SUMAR VERÐ
01.06 -31.09 2009
|
Eins
manns herbergi/Single room |
14.500.
kr
|
|
Tveggja
manna herbergi/Double room |
16.500.
kr
|
|
Þriggja
manna herbergi/Triple room |
19.500.
kr
|
|
Aukarúm/Extra bed |
4.000. kr |
Herbergjapantanir á
pantanir@hotelborgarnes.com og í síma 437 1119.
Ráðstefnur /árshátíðir
Starfsfólk Hótel Borgarness hefur áralanga reynslu af ráðsefnu og
árshátíðarhaldi og er öll aðstaða fyrir slíkt mjög góð. Hótelið
hefur á að skipa stórum sem smáum veitinga og fundasölum sem taka
allt að 350 matar og ráðstefnugesti. Öll nauðsynleg aðstaða er fyrir
hendi svo sem ljósritunarvél, faxtæki, nettölvur, skjávarpi,
myndvarpar og prentarar.
Þá er hótelið rómað fyrir góðar veitingar og fylgir hér sýnishorn af
hópmatseðli.
Hvannarsúpa Hótel Borgarnes
Marineraðar rækjur “tahiti”
Blandað “sushi”
Hunangsristuð kjúklingabringa með appelsínu- engifersósu
Heilsteikt nautafille með koniaks- piparsósu
Pönnusteikt lambafille með portvínssósu
Vanillu Panna Cotta með ávaxtasósu
Við gerum tilboð sem hentar hverjum og einum og lofum góðum verðum
og góðri þjónustu.
Frekari upplýsingar pantanir@hotelborgarnes.com og í síma 437 1119
|